Torgið – fræðslukerfi Reykjavíkurborgar heldur utan um fræðslu og þjálfun starfsfólks, þar á meðal skyldufræðslu, nýliðaþjálfun, stjórnendaþjálfun og alla aðra fræðslu sem stendur starfsfólki til boða. 

Í kerfinu getur starfsfólk sótt stafræna fræðslu, til dæmis á formi myndbanda og texta, eða skráð sig á rauntímafræðslu hvort sem það er fjarnámskeið eða staðnámskeið. 

Öll þátttaka í gegnum Torgið er skráð í fræðslusögu starfsfólks.

Starfsfólk skrifstofu skóla- og frístundasviðs veitir fjölbreytta ráðgjöf og stuðning m.a. með miðlun upplýsinga á sérstökum vefsvæðum sem stutt geta við innleiðingu menntastefnunnar og stuðla að þróun og nýsköpun. 

NýMennt, Nýsköpunar- og menntasamfélag starfar á Menntavísindasviði Háskóla Íslands og vinnur náið með Mixtúru, sköpunar- og tækniveri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar. Fræðslustundir og menntabúðir eru dæmi um sameiginlega viðburði.

NýMennt sinnir fjölbreyttum verkefnum á öllum skólastigum meðal annars starfsþróun. Auk þess sinnir deildin nýsköpunar- og frumkvöðlamennt í skólastarfi. NýMennt sér einnig um keppnir og menntaverkefni eins og Nýsköpunarkeppni grunnskólanna, Lego League og Stækkaðu framtíðina.

Samstarfssamningur er í gildi við skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar um starfsþróun og geta starfsstaðir óskað eftir fræðslu og ráðgjöf með því að hafa samband við starfsthrounmvs@hi.is

Scroll to Top