Ítarefni

Leikjavarpið

Leikjavarpið er íslenskt hlaðvarp þar sem fjallað er um það helsta úr heimi tölvuleikja. Umfjöllun um tölvuleiki er yfirleitt á ensku en í Leikjavarpinu er fjallað um þá á íslensku. Í þáttum Leikvarpsins er meðal annars fjallað um nýlega tölvuleiki, tölvuleikjafréttir og valdir tölvuleikir eru gagnrýndir.

Bæklingur um einhverfu

Ítarlegur bæklingur um einhverfu, s.s. um einkenni, samskipti, greiningarviðmið og góð ráð. Bæklingurinn er unnin á vegum Einhverfusamtakanna.

Fjölgun frístundafræðinga og störf þeirra

Í þessu erindi sem flutt var á menntastefnumóti skóla- og frístundasviðs 10. maí 2021, fjalla Soffía Pálsdóttir, skrifstofustjóri frístundamála, Íunn Eir Gunnarsdóttir, tómstunda- og félagsmálafræðingur,  Sigrún Sveinbjörnsdóttir og Gísli Ólafsson, verkefnastjórar á frístundahluta fagskrifstofu um störf frístundafræðinga á frístundaheimilum SFS. Soffía segir frá tilurð verkefnisins og markmiðum þess, Íunn kynnir kennsluhandbók sem nýtist frístundafræðingum í …

Fjölgun frístundafræðinga og störf þeirra Read More »

Ég um mig, frá mér til ykkar

Saga stráks sem erfitt var að þykja vænt um. Í þessu erindi, sem fyrst var flutt á ráðstefnunni En ég var einn! Sjálfsmynd stráka og kerfið sem fram fór í september 2020 fjallar Björgvin Páll Gústavsson um sína sögu og  sjálfsmynd stráka og líðan þeirra í skólakerfinu.

Myndir segja meira

Í þessu erindi segir Bergrún Íris Sævarsdóttir barnabókahöfundur frá sköpunarferli barnabóka og skoðar þær út frá samspili teikninga og texta. Erindið flutti hún á menntastefnumóti 10. maí 2021. Börn verða myndlæs löngu áður en þau læra að ráða í stafi og orð. Þá sjá börn oft smáatriði í myndum sem fara framhjá hinum textamiðaða fullorðna …

Myndir segja meira Read More »

Uppspretta – safnafræðsla fyrir börn

Í þessu kynningarmyndbandi er farið stuttlega yfir efni á vefnum Uppspretta þar sem kynna má sér fjölmörg fræðslutilboð lista- og menningarstofnana í borginni. Í gegnum Uppspretu má bóka skólaheimsóknir.    

Þjónusta talmeinafræðinga við börn með málþroskaröskun

Í þessu myndbandi fara talmeinafræðingarnir Anna Lísa Benediktsdóttir og Valdís Björk Þorgeirsdóttir talmeinafræðingar yfir hvað málþroskaröskun DLD (e.Developmental Language Disorder) er og kynna hvaða þjónustu er að fá á þjónustumiðstöðvum borgarinnar fyrir leik- og grunnskólabörn með málþroska- og málhljóðaröskun.    

“Það myndast svona Skrekksfjölskylda. Það er alveg rosalega mikið traust í þessu”

Í þessu myndbandi er fjallað um Skrekk, hæfileikakeppni SFS, út frá ýmsum sjónarhornum. Harpa Rut Hilmarsdóttir Skrekksstýra fer yfir farinn veg. Þá segir Jóna Guðrún Jónsdóttir frá rannsókn sem hún gerði á áhrifum þess að taka þátt í Skrekk á líðan og sjálfsmynd unglinga.  Saga María og Kári Freyr, fyrrum þátttakendur í Skrekk koma í …

“Það myndast svona Skrekksfjölskylda. Það er alveg rosalega mikið traust í þessu” Read More »

Listrænt ákall til náttúrunnar

Í þessu myndbandi segir Ásthildur B. Jónsdóttir verkefnastjóri frá LÁN (Listrænt ákall til náttúrunnar) sem er þverfaglegt þróunarverkefni í 16 grunn- og leikskólum í Reykjavík. Hún fjallar um hugmyndafræðina, kennslu og framkvæmdina, auk þess sem sýnt er frá afrakstri og uppskeruhátíð verkefnisins, sýningu á Barnamenningarhátíð vorið 2021.

Skapandi námssamfélag og sköpunarver

Í þessu erindi sem haldið var á menntastefnumótinu 10. maí 2021 kynna þær Hafey, Bryndís og Þóra samstarf þriggja grunnskóla í Breiðholti og Fab-Lab Reykjavíkur.  Samstarfsverkefnið ber nafnið Skapandi námssamfélag og felur í sér að setja upp sköpunarver í grunnskólunum til að efla sköpunargleði nemenda. Farið verður yfir framvindu verkefnisins til þess að efla kennara …

Skapandi námssamfélag og sköpunarver Read More »

Scroll to Top
Scroll to Top