2025-2026

Skjól í stormi

Trans fólk stendur oft í ströngum félagslegum stormi. Þessi stormur er bæði kröftugur og fyrirferðarmikill. Trans ungmenni eru í sérstakri hættu á að verða fyrir barðinu á honum. Þess vegna er mikilvægt að við grípum inn í og bjóðum þeim tækifæri til að efla sjálfstraust sitt. Markmiðið er að styrkja þau félagslega og andlega, auk […]

Skjól í stormi Read More »

Tónlistariðkun í þremur leikskólum

Verkefnið Tónlistariðkun í þremur leikskólum er samþætt rannsóknar- og þróunarverkefni þar sem megin markmiðið er efling tónlistarkennslu og tónlistariðkunar á leikskólastiginu. Þrír öflugir tónlistarkennarar sem starfa í þessum leikskólum munu auka samstarf sín á milli og í samvinnu við sérfræðinga á Menntavísindasviði Háskóla Íslands og Nýsköpunarmiðstöð menntamála (SFS) og vinna að afurð í formi stuðningsefnis

Tónlistariðkun í þremur leikskólum Read More »

Markvisst innra mat

Verkefninu „Markvisst innra mat“ er ætlað að bregðast við tveimur mikilvægum áskorunum í skólastarfi. Annars vegar snýr það að gæðum innra mats í grunnskólum. Hins vegar er markmiðið að deila verkefnum og þétta samstarf milli skóla og hverfa í Reykjavík. Þekking og innblástur fyrir stjórnendur Meginmarkmið verkefnisins er að skapa tækifæri fyrir stjórnendur og lykilstarfsmenn

Markvisst innra mat Read More »

Málþroski og læsi – að virkja þátttöku foreldra

Verkefnið „Málþroski og læsi“ miðar að því að styrkja íslenskan orðaforða barna í Fellahverfi með því að efla íslenskukunnáttu allrar fjölskyldunnar. Þar sem um 90% barna í hverfinu eiga annað móðurmál en íslensku, er virk þátttaka foreldra lykilatriði í farsælu námi. Með bókagjöfum, fræðslumyndböndum og nánu samstarfi heimilis og skóla búum við til öruggt og

Málþroski og læsi – að virkja þátttöku foreldra Read More »

Leiklist, dans og sköpun í Miðborginni

Þetta verkefni miðar að því að virkja börn og unglinga til þátttöku í gegnum skapandi ferli og hópastarf, í takt við hæfniþætti Menntastefnu Reykjavíkur. Verkefnið á sér stað í hverfi þar sem íbúasamsetningin er fjölbreytt og þar sem skóla- og frístundastarf í miðborginni stendur frammi fyrir ýmsum áskorunum. Með því að byggja á listsköpun og

Leiklist, dans og sköpun í Miðborginni Read More »

Handbókin Kynverund og kúltúr: Kynfræðsla fyrir börn og ungmenni með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn

Kynfræðsla er oft ekki nægilega aðgengileg fyrir börn og ungmenni af fjölbreyttum tungumála- og menningarbakgrunni. Í Fellaskóla og öðrum fjölbreyttum skólaumhverfum hafa komið upp áskoranir þar sem nemendur vilja jafnvel ekki taka þátt í kynfræðslu vegna misskilnings eða mismunandi menningarlegra gilda. Ef kynfræðsla tekur ekki mið af þessum fjölbreytileika getur það leitt til samskiptaörðugleika, árekstra

Handbókin Kynverund og kúltúr: Kynfræðsla fyrir börn og ungmenni með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn Read More »

Hverfið okkar í nærmynd – rödd samfélagsins

Þetta verkefni veitir nemendum tækifæri til að kafa ofan í samfélag og menningu Grafarvogs á skapandi og gagnvirkan hátt. Með því að nýta sjónræna og hljóðræna miðla fá þeir að rannsaka sögu og menningu hverfisins og miðla því sem þeir uppgötva á eigin forsendum. Nemendur munu taka viðtöl við íbúa, listafólk og íþróttafólk og fá

Hverfið okkar í nærmynd – rödd samfélagsins Read More »

HugSmiðja – Hugsandi skólasamfélag

Læsi í víðu samhengi, skapandi hugsun og notkun stafrænnar tækni eru sífellt mikilvægari þættir í námi. Í verkefni til þriggja ára viljum við byggja upp skólasöfn sem styðja við 21. aldar kennsluhætti, ekki eingöngu til hefðbundins hlutverks þeirra m.t.t. bókakosts, heldur einnig á tækni- og tækjakost þeirra m.t.t. stafrænnar umbreytingar. Með auknu aðgengi að stafrænni

HugSmiðja – Hugsandi skólasamfélag Read More »

Heillaspor í skólastarfi

Austurbæjarskóli og Rimaskóli, ásamt leikskólum hverfisins og frístundamiðstöðvum, hafa verið valdir af skólayfirvöldum í Reykjavík til að hefja innleiðingu á Heillaspori (Nurture) haustið 2024. Skóla- og frístundaráð hefur sett í Menntastefnu aðgerðir fyrir 2025-2027 sem kveða á um innleiðingu Nurture í allar starfsstöðvar borgarinnar. Innleiðingarskólarnir telja mikilvægt að horfa á raunprófaðar aðferðir og vanda til

Heillaspor í skólastarfi Read More »

Scroll to Top