Austurbæjarskóli og Rimaskóli, ásamt leikskólum hverfisins og frístundamiðstöðvum, hafa verið valdir af skólayfirvöldum í Reykjavík til að hefja innleiðingu á Heillaspori (Nurture) haustið 2024. Skóla- og frístundaráð hefur sett í Menntastefnu aðgerðir fyrir 2025-2027 sem kveða á um innleiðingu Nurture í allar starfsstöðvar borgarinnar. Innleiðingarskólarnir telja mikilvægt að horfa á raunprófaðar aðferðir og vanda til verka. Því er áhugi okkar í grunnskólanum að fá Háskóla Íslands með okkur í þessa vegferð.
Innleiðing Heillaspora styður við áherslur farsældarlaga, þar sem fylgst er með velferð og farsæld barna og foreldra, þjónustuþörf er metin og brugðist við henni á skilvirkan hátt. Þróunarverkefnið styður innleiðingu nýrra starfshátta, m.a. valdeflingu kennara sem auðveldar þeim að mæta fjölbreyttum þörfum barna. Meðfram þessu eykst þekking kennara á því að lesa í hegðun og hvað veldur t.d. óæskilegri hegðun barna. Mikilvægt er að hægt sé að lesa í hegðun barns svo hægt sé að koma til móts við þarfir þess.
Heillaspor getur verið mikilvægt fyrir starfsemi skólans þar sem það styður við lög um farsæld barna. Verkefnið styður jafnframt áherslur sem fram koma í Menntastefnu til ársins 2030, þar sem stoðir áætlunarinnar eru m.a. jöfn tækifæri fyrir alla, kennsla í fremstu röð, vellíðan í öndvegi og gæði í forgrunni.
Þátttakendur eru: Rimaskóli, Austurbæjarskóli, Menntavísindasvið HÍ, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og Austurmiðstöð.
Verkefnastjóri er Þóranna Rósa Ólafsdóttir.
Verkefnið hlaut 6.000.000 kr. styrk úr B-hluta þróunarsjóðar 2025-2026.