2025-2026

Skjól í stormi

Trans fólk stendur í stormi sem er bæði kröftugur og fyrirferðarmikill og eru trans ungmenni í mikilli hættu á að koma illa út úr honum nema að við tökum skref í að veita þeim tækifæri til að efla sjálfstraust, styrkja þau félagslega sem og andlega og gefa þeim verkfæri sem nýtast þeim út ævina. Trans […]

Skjól í stormi Read More »

Tónlistariðkun í þremur leikskólum

Verkefnið Tónlistariðkun í þremur leikskólum er samþætt rannsóknar- og þróunarverkefni þar sem megin markmiðið er efling tónlistarkennslu og tónlistariðkunar á leikskólastiginu. Þrír öflugir tónlistarkennarar sem starfa í þessum leikskólum munu auka samstarf sín á milli og í samvinnu við sérfræðinga á Menntavísindasviði Háskóla Íslands og Nýsköpunarmiðstöð menntamála (SFS) og vinna að afurð í formi stuðningsefnis

Tónlistariðkun í þremur leikskólum Read More »

Markvisst innra mat

Verkefninu „Markvisst innra mat“ samstarfsverkefni milli skóla innan hverfa og milli hverfa er ætlað að bregðast við tveimur áskorunum, annars vegar áskorun sem lítur að innra mati í grunnskólum og gæðum skólastarfs og hins vegar áskorun um að deila verkefnum og þétta samstarf grunnskóla innan og milli hverfa. Meginmarkmið verkefnisins er að skapa tækifæri fyrir

Markvisst innra mat Read More »

Málþroski og læsi – að virkja þátttöku foreldra

Með þessu verkefni ætlum við að fá foreldra í samstarf og stuðla að inngildingu þeirra í námi og leik barna sinna með því að efla íslenskan orðaforða þeirra. Það mun stuðla að betri tengingu og þátttöku þeirra í starfi skólanna. Ávinningur verkefnisins verður virkari þátttaka foreldra í námi og starfi barna sinna. Aukin íslenskukunnátta þeirra

Málþroski og læsi – að virkja þátttöku foreldra Read More »

Leiklist, dans og sköpun í Miðborginni

Þetta verkefni miðar að því að virkja börn og unglinga til þátttöku í gegnum skapandi ferli og hópastarf, í takt við hæfniþætti Menntastefnu Reykjavíkur. Verkefnið á sér stað í hverfi þar sem íbúasamsetningin er fjölbreytt og þar sem skóla- og frístundastarf í miðborginni stendur frammi fyrir ýmsum áskorunum. Með því að byggja á listsköpun og

Leiklist, dans og sköpun í Miðborginni Read More »

Handbókin Kynverund og kúltúr: Kynfræðsla fyrir börn og ungmenni með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn

Kynfræðsla er oft ekki nægilega aðgengileg fyrir börn og ungmenni af fjölbreyttum tungumála- og menningarbakgrunni. Í Fellaskóla og öðrum fjölbreyttum skólaumhverfum hafa komið upp áskoranir þar sem nemendur vilja jafnvel ekki taka þátt í kynfræðslu vegna misskilnings eða mismunandi menningarlegra gilda. Ef kynfræðsla tekur ekki mið af þessum fjölbreytileika getur það leitt til samskiptaörðugleika, árekstra

Handbókin Kynverund og kúltúr: Kynfræðsla fyrir börn og ungmenni með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn Read More »

Hverfið okkar í nærmynd – rödd samfélagsins

Þetta verkefni veitir nemendum tækifæri til að kafa ofan í samfélag og menningu Grafarvogs á skapandi og gagnvirkan hátt. Með því að nýta sjónræna og hljóðræna miðla fá þeir að rannsaka sögu og menningu hverfisins og miðla því sem þeir uppgötva á eigin forsendum. Nemendur munu taka viðtöl við íbúa, listafólk og íþróttafólk og fá

Hverfið okkar í nærmynd – rödd samfélagsins Read More »

HugSmiðja – Hugsandi skólasamfélag

Læsi í víðu samhengi, skapandi hugsun og notkun stafrænnar tækni eru sífellt mikilvægari þættir í námi. Í verkefni til þriggja ára viljum við byggja upp skólasöfn sem styðja við 21. aldar kennsluhætti, ekki eingöngu til hefðbundins hlutverks þeirra m.t.t. bókakosts, heldur einnig á tækni- og tækjakost þeirra m.t.t. stafrænnar umbreytingar. Með auknu aðgengi að stafrænni

HugSmiðja – Hugsandi skólasamfélag Read More »

Heillaspor í skólastarfi

Austurbæjarskóli og Rimaskóli, ásamt leikskólum hverfisins og frístundamiðstöðvum, hafa verið valdir af skólayfirvöldum í Reykjavík til að hefja innleiðingu á Heillaspori (Nurture) haustið 2024. Skóla- og frístundaráð hefur sett í Menntastefnu aðgerðir fyrir 2025-2027 sem kveða á um innleiðingu Nurture í allar starfsstöðvar borgarinnar. Innleiðingarskólarnir telja mikilvægt að horfa á raunprófaðar aðferðir og vanda til

Heillaspor í skólastarfi Read More »

Scroll to Top