Félagsfærni

Farsæld til framtíðar

Verkefnið Farsæld til framtíðar er forvarnarverkefni fyrir börn í 5-7. bekk í Fella- og Hólabrekkuskóla. Um er að ræða samstarfsverkefni grunnskólahluta Skóla- og frístundadeildar Suðurmiðstöðvar, frístundamiðstöðvarinnar Miðbergs og Fella- og Hólabrekkuskóla. Verkefnið er tilraunaverkefni til eins árs, skólaársins 2024 – 2025 með möguleika á áframhaldi. Verkefninu er ætlað að bregðast við þeim áskorunum sem staðið er frammi fyrir í málefnum barna- og unglinga. Ljóst er að þörf er á markvissari forvörnum á sviði samskipta, félagsfærni og geðræktar m.t.t. félagslega breyta og bakgrunns nemanda. Verkefnið leggur sérstaka áherslu á nemendur á miðstigi með því markmiði að koma í veg fyrir frekari vanda á unglings- og framhaldsskólastigi. Með snemmtækri íhlutun og skilgreindu samstarfi stofnana hverfisins aukast líkur á árangri í einstökum málum sem aftur hefur áhrif á námsárangur, líðan og sjálfsmynd unglinga. Allt þetta eykur jafnframt líkur á farsæld á fullorðinsárum.

Þátttakendur eru: Félagsmiðstöðin Hundraðogellefu, Fellaskóli, Hólabrekkuskóli, Suðurmiðstöð, Menntavísindasvið HÍ og Netumferðarskólinn

Verkefnastjóri er Hlynur Einarsson.

Verkefnið hlaut 8.000.000 kr. styrk úr B-hluta þróunarsjóðar 2025-2026.

Tenging við menntastefnu Félagsfærni
Starfsstaður Frístundastarf, Grunnskóli
Skólaár 2025-2026
Scroll to Top