Sjálfsefling

Skjól í stormi

Trans fólk stendur í stormi sem er bæði kröftugur og fyrirferðarmikill og eru trans ungmenni í mikilli hættu á að koma illa út úr honum nema að við tökum skref í að veita þeim tækifæri til að efla sjálfstraust, styrkja þau félagslega sem og andlega og gefa þeim verkfæri sem nýtast þeim út ævina. Trans ungmenni eru í meiri áhættu en gagnkynhneigðir jafnaldrar á að glíma við andleg veikindi vegna áhrifaþátta sem koma frá samfélaginu og þurfum við að taka ábyrgð á uppeldishlutverki félagsmiðstöðva í þeim málum og hlúa enn betur að þeim en við höfum verið að gera hingað til. Við þurfum líka að efla starfsfólk félagsmiðstöðva í að taka á móti þessum hópi ungmenna og tryggja það að öll trans ungmenni eigi öruggt skjól í frístundastarfi borgarinnar og auka líkurnar á því að þau nýti það skjól í þessum stormi.

Þátttakendur eru: Frístundamiðstöðvarnar Tjörnin, Brúin, Kringlumýri og Miðberg, mannréttinda- og lýðræðisskrifstofa Reykjavíkurborgar, fagskrifstofa frístundamála á skóla- og frístundasviði og Samtökin 78.

Verkefnastjórar eru Hrefna Þórarinsdóttir og Andrea Marel Þorsteinsdóttir.

Verkefnið hlaut 7.000.000 kr. styrk úr B-hluta þróunarsjóðar 2025-2026.

Tenging við menntastefnu Sjálfsefling
Starfsstaður Frístundastarf
Skólaár 2025-2026
Scroll to Top