Verkefnið Leikur, nám og gleði er samstarfsverkefni leikskólanna Grandaborgar, Gullborgar og Ægisborgar. Verkefnið er unnið í samstarfið við Dr. Önnu Magneu Hreinsdóttur, aðjúnkt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Markmið verkefnisins eru tvö. Í fyrsta lagi að undirstrika mikilvægi leiksins sem meginnámsleiðar barna með áherslu á hlutverk og stuðning kennara og annars starfsfólk, námsumhverfi sem styður við leik og að börnin hafi tækifæri til að læra hvert af öðru. Í öðru lagi að þróa starfshætti sem taka mið af þörfum yngstu barnanna og námi. Tilgangurinn er að festa starfshætti í sessi sem ganga út frá því að leikurinn sé meginnámsleið barnanna. Hugað verður að hlutverki kennara, skipulagi leikumhverfis, leikefnis, tíma og þeim möguleikum sem börnin hafa til að þróa hugmyndir sínar og leik í daglegu starfi. Í öðru lagi að þróa starfshætti með þarfir og nám yngstu barnanna í huga. Verkefnið endurspeglar áherslu menntastefnunnar á fagmennsku og samstarf leikskólanna og aukna þátttöku barna og virkni í leikskólastarfinu. Einnig á sjálfseflingu og félagsfærni þar sem leikskólastarf á að byggja á leik sem meginnámsleið barna. Til að ná þessum markmiðum verður lögð áhersla á að styrkja starfsfólk leikskólanna með þátttöku í fræðslu og umræðu um hvernig hægt er að leggja frekari áherslu á leik sem meginnámsleið barna. Einnig er ávinningur í því að leikskólastarf taki mið af þörfum og námi yngstu barnanna í leikskólanum.
Verkefnið hlaut 4.000.000 kr. styrk úr B-hluta þróunarsjóðar 2022-2023.