Fræðilegt

Við kunnum þetta: Öryggi og vellíðan fyrir öll börn og ungmenni með samræmdum samfélagsaðgerðum frá þingi til þorps – Forvarnardagurinn 2024

Málþing samfélagsnálgunar forvarnamánaðarins var haldið fimmtudaginn 31. október á Hótel Grand Reykjavík og í beinu streymi undir yfirskriftinni „Við kunnum þetta – Öryggi og vellíðan fyrir öll börn og ungmenni með samræmdum samfélagsaðgerðum frá þingi til þorps“. Embætti landlæknis stendur að forvarnardeginum í samstarfi við embætti forseta Íslands, Reykjavíkurborg, Íþrótta- og ólympíusamband Íslands, Skátana, Ungmennafélag […]

Við kunnum þetta: Öryggi og vellíðan fyrir öll börn og ungmenni með samræmdum samfélagsaðgerðum frá þingi til þorps – Forvarnardagurinn 2024 Read More »

Ræktun mennskunar: Hvernig eflum við samskiptahæfni?

Í þessari grein Sigrúnar Aðalbjarnardóttur sem birtist í tímaritinu Skólaþræðir er fjallað um mikilvægi samskiptahæfni. Annars vegar með tilliti til þess hvernig þroskaþættir fléttast saman og hvernig samskiptahæfni skiptir máli í tengslum við ýmsa þætti velferðar í æsku. Athygli er beint sérstaklega að hlutverki skóla- og frístundastarfsins við að styrkja þessa hæfni með börnum og

Ræktun mennskunar: Hvernig eflum við samskiptahæfni? Read More »

Heimsmarkmið – Sjónvarpsþættir

Á vef MenntaRÚV og KrakkaRÚV er að vinna mjög góða sjónvarpsþætti þar sem Dídí og Aron fjalla um Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Í hverjum þætti er eitt markmið tekið fyrir. Við getum öll lagt okkar af mörkum svo hægt sé að ná heimsmarkmiðunum fyrir árið 2030 og í kjölfarið gera heiminn að betri stað. Umsjón: Aron Gauti Kristinsson og Steinunn Kristín Valtýsdóttir. Þættirnir eru unnir í samstarfi við forsætisráðuneytið og utanríkisráðuneytið.

Heimsmarkmið – Sjónvarpsþættir Read More »

Hvað er ADHD?

ADHD samtökin hafa gefið út einstaklega nytsamlegan bækling sem útskýrir ADHD. Markmið ADHD samtakanna er að börn og fullorðnir með athyglisbrest, ofvirkni og skyldar raskanir mæti skilningi alls staðar í samfélaginu og fái þjónustu sem stuðlar að félagslegri aðlögun þeirra, möguleikum í námi og starfi og almennt bættum lífsgæðum.

Hvað er ADHD? Read More »

Scroll to Top