Verkefni

Skapandi skil í Engjaskóla

Í þessu myndbandi kynnir Jóhanna Höskuldsdóttir leiðir að fjölbreyttum skilum verkefna – og sýnir dæmi um valvegg og skapandi skil nemenda, s.s. í formi myndbanda.  

Glæpavettvangur í Norðlingaskóla

Ritunarverkefnið Glæpavettvangur var unnið af íslenskukennurum á miðstigi í Norðlingaskóla í anda leiðsagnarnáms og stuðst var við hugmyndafræði ,,rætt til ritunar” eða Talk for writing. Nemendur settu sig í spor rannsóknarlögreglu og unnu ýmis ritunarverkefni sem tengdust glæpavettvangi. Einnig settu nemendur sig í spor fréttamanna og rituðu fréttir af glæpnum. Í þessu myndbandi kynna þau Unnur …

Glæpavettvangur í Norðlingaskóla Read More »

Kynja- og hinseginfræði í leik- og grunnskólum

Kynja- og hinseginfræðsla er mikilvæg á öllum skólastigum. Slík fræðsla leiðir til aukins skilnings á fjölbreytileika og dregur úr einelti. Niðurstöður rannsókna sýna að jafnréttisfræðslu er víða ábótavant. Markmiðið með þessu verkefni er að fá skipulagða yfirsýn og þekkingu á námsefni á sviði kynja- og hinseginfræða í leik- og grunnskólum til þess að auðvelda kennurum …

Kynja- og hinseginfræði í leik- og grunnskólum Read More »

Snjöll málörvun

Vefur með ýmsum hugmyndum um það hvernig vinna megi með orðflokka fyrir börn á leikskólaaldri. Vefurinn er í þróun og seinna mun bætast fleira og fjölbreyttara efni við sem tengist málörvun barna á leikskólaaldri.  

Hreyfing og hlustun

Hreyfing og hlustun gengur út á að efla hlustun, hreyfingu og umhverfislæsi barna með gönguferðum um nærumhverfi þeirra. Þar fer fram virk hlustun á göngu, m.a. með hlaðvarpi,  ásamt samtali um það sem fram fer.  Verkefnið var unnið fyrir börn á frístundaheimilum Miðbergs í Breiðholti. Verkefnið Hreyfing og hlustun fékk styrk úr A-hluta þróunar- og nýsköpunarsjóðs …

Hreyfing og hlustun Read More »

Austur-Vestur sköpunarsmiðjur

Austur-Vestur-sköpunarsmiðjur  eru þróunarverkefni sem unnið er í samstarfi Ingunnarskóla, Selásskóla og Vesturbæjarskóla. Á vefsíðu verkefnisins má nálgast ítarlega upplýsingar um verkefnið. Verkefnið hlaut styrk í B-hluta þróunar og nýsköpunarsjóðs Skóla- og frístundaráðs fyrir skólaárið 2019-2020, 2020-2021 og 2021-2022.  Það fékk hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs í flokki samstarfsverkefna 2021 og var tilnefnt til Íslensku menntaverðlaunanna 2021 …

Austur-Vestur sköpunarsmiðjur Read More »

Mílan

Nemendur í grunnskóla hlaupa eina mílu á dag (1,61 km) á skólatíma. Börnin hlaupa eða skokka, á eigin hraða, í fersku lofti með vinum sínum. Börnin geta gengið inn á milli ef þau þurfa, en eiga að hafa það að markmiði að hlaupa í 15 mínútur. Markmiðið er að bæta líkamlega, félagslega, tilfinningalega og andlega …

Mílan Read More »

Fyrirmyndir

Í verkefninu Fyrirmyndir fékk skóla- og frístundasvið (SFS) einstaklinga af erlendum uppruna til að vera með stutt innlegg með skilaboðum til nemenda, foreldra og starfsmanna SFS. Markmið myndbandanna er að vekja athygli á fjölbreytileika samfélagsins og þeim fjölmörgu fyrirmyndum sem við eigum, fólki með ólíkan bakgrunn og reynslu af því að alast upp og láta drauma sína rætast …

Fyrirmyndir Read More »

Ólympiuhlaup ÍSÍ

Ólympíuhlaup ÍSÍ hefur tekið við af Norræna skólahlaupinu sem hefur verið hluti af skólaíþróttum síðan 1984. Með Ólympíuhlaupi ÍSÍ er leitast við að hvetja nemendur til þess að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan. Nemendur geta valið á milli þriggja vegalengda; 2,5 km, 5 og 10 km. Að hlaupinu loknu …

Ólympiuhlaup ÍSÍ Read More »

Scroll to Top
Scroll to Top