Félagsfærni

Tilfinningaspilið

Tilfinningaspjöldin kenna 12 tilfinningar sem hægt er að flokka í jákvæðar og erfiðar. Það er mikilvægt að tala ekki um neikvæðar tilfinningar heldur kenna börnum að allar tilfinningar eru eðlilegar og að allir lendi í því í lífinu að upplifa margs konar tilfinningar. Búið er að útbúa leiðbeiningar fyrir tilfinningaspjöldin til að auðvelda starfsfólki í […]

Tilfinningaspilið Read More »

Töfrandi tungumál – skýrsla

Í leikskólanum Miðborg hefur verið unnið að þróunarverkefninu Töfrandi tungumál . Verkefnið felst í því að innleiða kennsluaðferð sem kallast LAP (Linguistically Appropriate Practice) þar sem heimamál allra barna eru eðlilegur hluti af skólastarfinu. Aðferðin er þróuð í Kanada af Roma Chumak-Horbatsch. Sjá skýrslu um verkefnið

Töfrandi tungumál – skýrsla Read More »

Jafnréttisbaráttan – Kennsluefni fyrir 5.-10. bekk

Kennsluefnið í heild sinni má finna á vef Kvennréttindafélags Íslands er ætlað efri bekkjum grunnskóla 5.-10. bekk. Það samanstendur af sex æfingum og einu hópverkefni og hver æfing stendur sjálfstætt og því er frjálst að velja og nýta eitt verkefni. Stök æfing gæti átt heima í námsgreinum eins og samfélagsfræði, sögu, íslensku og stærðfræði. Séu

Jafnréttisbaráttan – Kennsluefni fyrir 5.-10. bekk Read More »

Fræðsla fyrir skólahópa í Húsdýragarðinum

Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn (FHG) býður upp á fjölbreytta fræðslu fyrir skólahópa á öllum skólastigum. Leikskólar og grunnskólar Reykjavíkurborgar geta sótt fræðsluna án endurgjalds og það er í boði að sækja fræðsluna allt skólaárið. Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir þá fræðslu sem í boði er auk þess sem að allir aldurshópar geta komið í

Fræðsla fyrir skólahópa í Húsdýragarðinum Read More »

Funfy – rafrænn leikjabanki

Í www.funfy.is . sjónræna leikjabankanum, er mikið af leikjum fyrir börn á öllum aldri. Leikirnir eru á ýmsum tungumálum til að ná til sem flestra á einfaldan hátt og hafa hver sitt markmið sem henta afmörkuðum hópi, eða einstaklingi. Leikur er ekki bara leikur, heldur frábær leið til að vinna með ótal þætti sem þarf

Funfy – rafrænn leikjabanki Read More »

Fyrirlestur um ADHD

Líðan barna er mikilvægur þáttur í öllu skólastarfi og tilfinningavandi getur haft afgerandi áhrif á námsframvindu. Í þessum fyrirlestri er farið yfir hagnýtar leiðir í kennslu barna með ADHD og hvernig hægt er að auka getu þeirra til náms. Fyrirlestrinuum er ætlað að efla þekkingu kennara á ADHD röskuninni og þeim áskorunum sem henni fylgja.

Fyrirlestur um ADHD Read More »

Trans börn og skólar

Heimasíða sem ætluð er fyrir skólastarfsfólk og skóla sem vilja verða transvænir og/eða skóla sem eru með trans börn og vilja vanda sig og styðja barnið í því ferli. Á heimasíðunni má finna ýmislegt gagnlegt um trans börn,  s.s. stuðningsáætlun, gátlista, náms- og fræðsluefni o.fl.

Trans börn og skólar Read More »

Scroll to Top