Sjálfsefling

Mílan

Nemendur í grunnskóla hlaupa eina mílu á dag (1,61 km) á skólatíma. Börnin hlaupa eða skokka, á eigin hraða, í fersku lofti með vinum sínum. Börnin geta gengið inn á milli ef þau þurfa, en eiga að hafa það að markmiði að hlaupa í 15 mínútur. Markmiðið er að bæta líkamlega, félagslega, tilfinningalega og andlega […]

Mílan Read More »

Þróunarverkefni um félagsfærni í Jöklaborg

Í þessu myndbandi er fjallað um þróunarverkefni í leikskólanum Jöklaborg sem snerist um að efla félagsfærni, m.a. með því að vinna með Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Markmið þróunarverkefnisins var að efla félagsfærni, sjálfshjálp, sjálfsmynd, hugrekki og hjálpsemi. Að þessum markmiðum var unnið í öllu daglegu starfi leikskólans. Hver deild valdi sér verkefni sem hæfðu aldri barnanna

Þróunarverkefni um félagsfærni í Jöklaborg Read More »

Fyrirmyndir

Í verkefninu Fyrirmyndir fékk skóla- og frístundasvið (SFS) einstaklinga af erlendum uppruna til að vera með stutt innlegg með skilaboðum til nemenda, foreldra og starfsmanna SFS. Markmið myndbandanna er að vekja athygli á fjölbreytileika samfélagsins og þeim fjölmörgu fyrirmyndum sem við eigum, fólki með ólíkan bakgrunn og reynslu af því að alast upp og láta drauma sína rætast

Fyrirmyndir Read More »

Leikur, styðjandi samskipti og lærdómssamfélag

Í þessu myndbandi er fjallað um hvernig unnið hefur verið í anda menntastefnunnar Látum draumana rætast í fjórum leikskólum í samstarfi við RannUng. Þetta eru leikskólarnir Reynisholt,  Stakkaborg, Tjörn og Ægisborg. Fjallað er um ferli samstarfsrannsókna og hver leikskóli kynnir hvernig hann vann með áhersluþætti menntastefnunnar. Verkefnið hlaut styrk í B-hluta þróunar- og nýsköpunarsjóðs skóla-

Leikur, styðjandi samskipti og lærdómssamfélag Read More »

Klárir krakkar í Ösp

Í leikskólanum Ösp hefur verið lögð áhersla á að efla félagsfærni . Í skólanum var innleitt verkefni úr Verkfærakistu Vöndu (Vöndu Sigurgeirsdóttur) og á sama tíma var vinabangsann Blær boðinn velkominn í barnahópinn. Í myndbandinu eru ljósmyndir frá öllum deildum leikskólans, leikstund úr verkfærakistunni og sameiginlega söngstund með bangsanum Blæ.

Klárir krakkar í Ösp Read More »

Markviss málörvun í Fellahverfi

Markviss málörvun í Fellahverfi er samvinnuverkefni Fellaskóla, Vinafells og leikskólanna Holts og Aspar. Markmið samstarfsins er að bæta orðaforða og hugtakaskilning barnanna og leggja þar með góðan grunn að læsi og framtíðarnámi þeirra. Unnið er með sameiginleg þemu í öllum skólunum í samstarfi við talmeinafræðingana Bryndísi Guðmundsdóttur og Tinnu Sigurðardóttur. Í myndbandinu er sagt frá

Markviss málörvun í Fellahverfi Read More »

Scroll to Top