Sköpun

Töfrar leiksýningar 7. bekkjar í Melaskóla

Í þessu myndbandi er kynnt samvinna LoVe-teymisins (list- og verkgreinakennarar) við uppfærslu á leikriti 7. bekkjar í Melaskóla. Farið er í allt ferlið, frá smiðjum til sýningar. LoVe-teymið skipa list- og verkgreinakennararnir: María Oddný Sigurðardóttir, Svava María Þórðardóttir, Marta Hrafnsdóttir, Sesselja G. Magnúsdóttir, Magnús Valur Pálsson, Sonný Hilma L. Þorbjörnsdóttir, Sigrún Baldursdóttir og Sveinn Bjarki …

Töfrar leiksýningar 7. bekkjar í Melaskóla Read More »

Draumaskólinn Fellaskóli

Í Fellaskóla er unnið að verkefni undir heitinu Draumaskólinn. Markmiðið með því er að nemendum bjóðist framúrskarandi menntun, nái góðum árangri þannig að þeir geti látið drauma sína rætast. Leiðarljós í skólastarfinu eru mál og læsi, leiðsagnarnám, tónlist og skapandi skólastarf. Sjá myndband um verkefnið þar sem deildarstjórar kynna kennsluhætti, leiðsagnarnám og fl.

Smiðjan – Samþætting námsgreina, teymiskennsla, tækni og sköpun í unglingakennslu

Í þessu myndbandi er farið í heimsókn í smiðju í Langholtsskóla og kynnst teymiskennslu og skapandi námi með upplýsingatækni. Kennarar í Langholtsskóla ræða upplifun sína af teymiskennslu og samþættingu og hag ákveðinna námsgreina af samþættingunni. Einnig er komið inn á skipulag kennslunnar og hvernig reynt er að gera námsumhverfið og umgjörð námsins sem mest skapandi.

Eðlisfræði – nám af neti

Fjarkennsla í eðlisfræði í unglingadeild Norðlingaskóla – stuðst við Khan Academy. Í samkomubanni haustið 2020 var farið af stað með fjartíma í eðlisfræði í  10. bekk. Ánægja var með þetta fyrirkomulag og þegar nemendur gátu farið að mæta í skólann aftur þá var ákveðið að halda áfram með fjartímana ásamt stuðningstímum í skólanum. Fjartímarnir eru …

Eðlisfræði – nám af neti Read More »

Heimsmynd Víkurskóla

Víkurskóli er að feta sín fyrstu spor í því að auka vægi list- og verkgreina, nota nýsköpunarhugsun og vinna með hönnunarferli. Í þessu kynningarmyndbandi er farið yfir stefnu skólans og verkefni nemenda og reifað hvernig skólanum tókst til á fyrsta starfsári sínu þar sem heimsfaraldur setti starfinu ýmis mörk.  

Þitt eigið hlaðvarp

Vinnubók sem leiðir mann í gegnum ferlið að búa til hlaðvarpsþátt (e. Podcast), allt frá rannsóknarvinnu yfir í uppbyggingu og skipulag. Höfundur Oddur Ingi Guðmundsson, kennari í Langholtsskóla.

G-skólar

Á þessum undirvef Reykjavíkurborgar eru hagnýtar upplýsingar og leiðbeiningar um hugbúnað, námstæki, persónuvernd og ýmsar leiðbeiningar til að styðja við stafræna grósku í skóla- og frístundastarfi borgarinnar. Vefurinn er hugsaður fyrir nemendur, foreldra og starfsmenn.

Kennsluvarpið

Kennsluvarpið er framleitt af Kennslumiðstöð Háskóla Íslands. Þar eru upplýsingar til kennara og kennaranema um stefnur og strauma á sviði kennslufræðinnar sem ætlað er að veita innblástur fyrir mismunandi kennsluaðferðir – bæði nýjar sem gamlar.  

Stafræn nálgun á textíl

Á þessari vefsíðu eru kennsluleiðbeiningar og ýmsar upplýsingar sem tengjast skapandi textílvinnu með stafrænni tækni. Margir spennandi möguleikar eru í boðitil að samþætta stafræna tækni og handverkið á skapandi hátt. Efninu er er skipt fimm flokka eftir því hvaða búnaður er notaður, en þeir eru; raftextíll, Cricut maker, þrívíddarprentun, laser skurður og stafrænn útsaumur. Áherslur …

Stafræn nálgun á textíl Read More »

Scroll to Top
Scroll to Top