9-12 ára

Kynjajafnrétti – námsefni fyrir miðstig grunnskóla

Þetta námsefni er ætlað miðstigi grunnskóla og byggir á hæfniviðmiðum og lykilhæfni Aðalnámskrár grunnskóla. Efnið er rafrænt og í formi gagnvirkra glærukynninga sem búnar voru til í fyrirlestrarforritinu Nearpod. Verkefnin byggja á femínískri menntunarfræði og kynjafræði og eru fimm talsins. Helstu þemu eru kvenleiki og karlmennska, kynbundinn launamunur, verkaskipting kynjanna, kynbundið náms- og starfsval og […]

Kynjajafnrétti – námsefni fyrir miðstig grunnskóla Read More »

Frá mínum sjónarhól – Heimsmarkmiðin/Kynjafræði

Verkefni um kynjajafnrétti og tengingu við sjálfbærni út frá Heimsmarkmiðunum. Verkefnið tekur tvær kennslustundir auk heimanáms á milli kennslustunda. Markmið verkefnis er að fá nemendur til að skoða nærumhverfi sitt og stöðu jafnréttis í samfélaginu. Einnig að átta sig á mikilvægi kynjajafnréttis og tengingu jafnréttis við sjálfbærni í heiminum. Nemendur læra m.a. að safna saman,

Frá mínum sjónarhól – Heimsmarkmiðin/Kynjafræði Read More »

Byggjum betri heim – Verkefnahefti byggt á heimsmarkmiðum Sþ

Verkefnahefti sem skátahreyfingin tók saman og byggir á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Verkefnin er hægt að aðlaga að öllum aldurshópum. Verkefnaheftið er þýtt og staðfært en það er bæði hægt að nota það rafrænt sem og að prenta það út. Góð kynning er á hverju heimsmarkmiði fyrir sig og hverju markmiði fylgja verkefni af ýmsu tagi

Byggjum betri heim – Verkefnahefti byggt á heimsmarkmiðum Sþ Read More »

Landslag í þrívídd

Efla hefur safnað landfræðilegum gögnum og unnið nokkur þrívíddarlíkön af landslagi sem gaman er skoða og nýta í kennslu og útinámi. Hér er líkan af Búrfellsgjánni í nágrenni Reykjavíkur. Þar hefur þunnfljótandi hraun flætt eftir farvegi. Hraunið hefur ekki náð að storkna nema í hliðum farvegarins og það eru einmitt þær hliðar sem mynda gjána

Landslag í þrívídd Read More »

Leiðbeiningar til starfsfólks – Kynferðisleg áreitni eða ofbeldi

Börn eiga rétt á því að ræða við starfsfólk í skóla- og frístundastarfi í trúnaði um viðkvæm mál, t.d. um kynferðislega áreitni eða kynferðislegt ofbeldi. Mikilvægt er að starfsfólk haldi ró sinni, hlusti vel á barnið og gæti þess að spyrja ekki leiðandi spurninga. Barnið skal í öllum tilvikum njóta vafans og fá ráðgjöf og

Leiðbeiningar til starfsfólks – Kynferðisleg áreitni eða ofbeldi Read More »

Scroll to Top