Grunnskóli

Öll í sama liði

Vanlíðan barna og unglinga hefur aukist síðustu ár samkvæmt niðurstöðum R&G. Fagfólk og aðrir sem starfa með börnum og unglingum hafa upplifað aukningu í slæmri orðræðu og óæskilega hegðun í barna og unglingahópum. Öll í sama liði er verkefni sem hefur það að markmiði að ýta undir jákvæð samskipti barna og unglinga, stuðla að því …

Öll í sama liði Read More »

Innleiðing á Gagnvirka samstarfslíkaninu í grunnskólum í Breiðholti

Markmið verkefnisins er að bæta þjónustu við nemendur og veita þeim stuðning á grundvelli fyrirliggjandi gagna og þarfa. Áhersla er á að efla lausnaleit starfsmanna skóla, auka trú þeirra á eigin getu til að styðja við nemendur og að starfsfólk styðji hvert annað í að skapa nemendum námsumhverfi út frá stöðu þeirra og þörfum. Þá …

Innleiðing á Gagnvirka samstarfslíkaninu í grunnskólum í Breiðholti Read More »

Tökum samtalið! Klám er ekki kynfræðsla

Markmið verkefnisins er að tryggja börnum og unglingum tæki og tól til að þroskast kynferðislega á heilbrigðan hátt og hvetja til að taka ábyrgð á eigin lífi sem aftur eflir sjálfið, o.fl. Þátttakendur í verkefninu eru frístundamiðstöðin Tjörnin, Stígamót, Jafnréttisskóli Reykjavíkur, Menntavísindasvið HÍ og Rannkyn. Verkefnastjóri er Eva Halldóra Guðmundsdóttir Skólaárið 2021-2022 fékk verkefnið 5.000.000 …

Tökum samtalið! Klám er ekki kynfræðsla Read More »

Fyrstu 1.000 orðin

Markmið verkefnisins er að fræða starfsfólk og foreldra um mikilvægi þess að efla málþroska og tungumálafærni barna (hlustun, málnotkun og tjáningu), að efla orðaforða barna á leikskólaaldri, skapa rauðan þráð í orðaforðavinnu allra leikskóla. Jafnframt að starfsfólk og kennarar í grunnskólum fái í hendurnar verkfæri með kennsluleiðbeiningum til að efla íslensku og stuðla að virku …

Fyrstu 1.000 orðin Read More »

Áframhald á innleiðingu leiðsagnarnáms í þekkingarskólum

Meginmarkmið verkefnisins er að gera nemendur með íslensku sem annað mál að virkum þátttakendum í skólastarfi og skólasamfélagi með því að halda áfram að innleiða nýjar kennsluaðferðir, útbúa kennsluleiðbeiningar, kennsluefni og kynningarefni. Þáttakendur í verkefninu eru Hlíðaskóli, Dalskóli, Hamraskóli, Borgaskóli, Víkurskóli og Engjaskóli. Verkefnastjóri er Katrín Cýrusdóttir skólastjóri. Skólaárið 2021-2022 fékk verkefnið 4.000.000 kr. styrk …

Áframhald á innleiðingu leiðsagnarnáms í þekkingarskólum Read More »

Hinsegyn-Hinseginvænni Grafarvogur og Kjalarnes

Markmið verkefnisins er að efla fræðslu og vitund um hinsegin málefni meðal starfsfólks grunnskóla og félagsmiðstöðva í Grafarvogi. Einnig að efla fræðslu og vitund um hinsegin málefni meðal nemenda á unglingastigi og að vinna markvisst með hinsegin unglingum í hverfinu  til að bæta geðheilsu þeirra, auka félagsfærni og styðja. Í þessu samverkefni taka þátt Gufunesbær, …

Hinsegyn-Hinseginvænni Grafarvogur og Kjalarnes Read More »

Kyn- og ofbeldisfræðsla í félagsmiðstöðvum, fræði og fagstarf

Með því að tryggja börnum og unglingum tæki og tól til að þroskast kynferðislega á heilbrigðan hátt styrkjum við þau í sjálfstæðum ákvörðunum og hvetjum þau til að taka ábyrgð á eigin lífi og efla þar með sjálfið,  o.fl. Stór hluti verkefnisins er unnin í samstarfi við Benediktu Sörensen/RannTóm sem er að gera doktorsrannsókn, sem …

Kyn- og ofbeldisfræðsla í félagsmiðstöðvum, fræði og fagstarf Read More »

Betra Breiðholt fyrir unglinga

Samstarfsverkefni skóla- og frístundadeildar Breiðholts, Þjónustumiðstöðvar Breiðholts og Keðjunnar sem miðar að því að mæta flóknum bráðavanda sem upp kemur meðal unglinga, með snemmtæka íhlutun að leiðarljósi. Verkefnið er unnið af þverfaglegu teymi skipuðu lykilstarfsfólki áðurnefndra stofnana auk teymisstjóra. Teyminu er ætlað að setja fram einstaklingsmiðaða framkvæmdaráætlun er varðar ungling eða hóp unglinga þar sem …

Betra Breiðholt fyrir unglinga Read More »

Verið velkomin í hverfið okkar – Viltu tala íslensku við mig?

Markmið þessa verkefnis er að efla kennslu og þverfaglega umgjörð í kringum nemendur með íslensku sem annað mál, ekki eingöngu með íslenskukennslu heldur með því að styrkja félagsfærni, sjálfsmynd og sjálfstraust þeirra í skólasamfélaginu. Helsta áskorunin er að taka upp nýjar kennsluaðferðir sem efla til muna tjáningarfærni, námsorðaforða og orðaforða í skólasamfélaginu hjá nemendum með …

Verið velkomin í hverfið okkar – Viltu tala íslensku við mig? Read More »

Frístundafræðingur á miðstigi

Verkefnið felur í sér að búa til stöðu frístundafræðings í þeim tilgangi að efla félagsfærni, sjálfsmynd, veita umhyggju og auka virka þátttöku barna á aldrinum 10-12 ára í Engjaskóla og Borgarskóla. Verkefnið er nýtt og hefur ekki unnið áður hér á landi svo vitað sé. Fyrirmyndin er fengin úr hugmyndafræði og verkefnum sem frístundafræðingar á …

Frístundafræðingur á miðstigi Read More »

Scroll to Top
Scroll to Top