Vefsvæði

Kynfræðsla

Á vef Menntamálastofnunar má finna námsefnið Kynlíf – kynfræðsla fyrir ungt fólk – kennsluleiðbeiningar. Í námsefn­inu er lögð á­hersla á fé­lagslega og til­finn­inga­lega þætti en jafn­framt fjall­að um líf­fræði­leg­ar hlið­ar kynþroskans. Not­ast er við að­ferð­ir „skemmti­mennt­ar“ (eduta­in­ment) þar sem menn­ing og miðl­ar mark­hóps­ins eru not­að­ir til að koma efn­inu til skila. Náms­efn­ið hef­ur feng­ið nafn­ið …

Kynfræðsla Read More »

Sambönd og kynlíf

Á vefnum Áttavitinn, sem er fyrir ungt fólk, er yfirflokkur sem fjallar um kynlíf, kynhneigð, samskipti og sambönd. 

Kynheilbrigði

Góður fræðsluvefur um kynheilbrigði, s.s. kynþroska, kynhneigð, getnaðarvarnir, barneignir, kynlífsraskanir, kynsjúkdóma, sjálfsfróun, heilbrigð sambönd o.fl.

Kroppurinn er kraftaverk – líkamvirðing fyrir börn

Á þessum vef Sigrúnar Daníelsdóttur sálfræðings er fróðleikur um hvernig styðja má við jákvæða líkamsmynd barna, heilbrigt samband við mat og virðingu fyrir fjölbreytileika líkamsvaxtar. Líkamsvirðing er að bera virðingu fyrir líkama sínum og annarra. Það þýðir að við hugsum vel um líkama okkar og hugsum fallega til hans. Við lærum að tengjast honum, hlusta …

Kroppurinn er kraftaverk – líkamvirðing fyrir börn Read More »

Youmo- vefsíða um kynheilbrigði

Frábær sænskur fræðsluvefur um allt mögulegt sem tengist kynheilbrigði og unglingsárunum. Þessi síða er á sex tungumálum og geymir glærur, myndbönd, greinar og ýmislegt sniðugt til að nota í kennslu.

Sambönd, kynlíf og tilfinningar

The Line er áströlsk vefsíða þar sem fjallað er um ýmislegt er snýr að samböndum, kynlífi, tilfinningum, karlmennsku o.fl.  Þar má finna gagnlegar upplýsingar fyrir kennara, foreldra og unglinga.

Teiknimyndasögur um allt mögulegt sem tengist kynlífi

Á þessari vefsíðu má finna efni sem tengist umræðuefni/viðfangsefni dagsins og varpa því upp sem teiknimynd. Hægt er að velja úr yfir 100 stuttum teiknimyndasögum. Hætt er við að sumir vafrar/netþjónar loki á síðuna þar sem efni hennar er túlkað sem klám.

Sjúk ást

Sjúk ást er verkefni á vegum Stígamóta um ofbeldi í samböndum ungmenna. Verkefninu er ætlað að vera forvörn gegn ofbeldi með því að fræða ungt fólk um mörk og samþykki. Markmiðið er að ungmenni þekki muninn á heilbrigðum, óheilbrigðum og ofbeldisfullum samböndum. Á vefnum eru upplýsingar um kynlíf, klám, birtingarmyndir ofbeldis, hvað einkennir heilbrigð sambönd …

Sjúk ást Read More »

Flæðilestur

Í leikskólanum Hulduheimum í Grafarvogi er flæðilestur með yngstu börnunum – en hvað er flæðilestur? Á heimasíðu Miðju máls og læsis er hugtakið og aðferðafræðin útskýrð.

Scroll to Top
Scroll to Top