Læsi

Málstefna Reykjavíkurborgar

Málstefna Reykjavíkurborgar var samþykkt í borgarstjórn þann 3. október 2017. Vandað, skýrt og auðskilið mál, hvort heldur ritað eða talað, er lykilatriði í allri þjónustu og stjórnsýslu Reykjavíkurborgar. Þar er íslenska í öndvegi og skal hún vera til fyrirmyndar í samræmi við þingsályktun um íslenska málstefnu frá 2009 og lög um stöðu íslenskrar tungu og …

Málstefna Reykjavíkurborgar Read More »

Gefðu tíu

Einföld aðferð ætluð til þess að auka samræðu og samskipti við fjöltyngd börn sem eru að læra íslensku sem annað mál.

Sögukassar, – pokar, skjóður og töskur

Í sögukössum, pokum, skjóðum eða töskum er viðbótarefni með sögulestri. Markmiðið er m.a. að gera orðin sýnilegri og söguna meira lifandi. Sjá hér að neðan hvernig útbúa má slíkt efni.

Vettvangsferðir leikskólabarna

Markmiðið með vettvangsferðum er að börnin kynnist sínu nánasta umhverfi og víkki sjóndeildarhringinn smátt og smátt. Jafnframt að þau tengist því samfélagi sem þau búa í og kynnist menningu og listum. Sjá hér að neðan hvernig standa má að vettvangsferð fyrir leikskólabörn.

Lesið með hverju barni

Markmiðið með því að lesa með hverju barni / einstaklingslestri er að barnið læri að njóta bóka. Þetta á vel við á yngstu deildum leikskóla, en er einnig góð leið þegar börn eru að læra eitt eða fleiri tungumál samhliða. Þá er þetta kjörin aðferð fyrir börn með málþroskaröskun.

Leikskólalóðin – útivera

Í útiveru njóta börnin þess að leika sér og hreyfa sig í hvaða veðri sem er, sumar, haust, vetur sem vor. Hvar liggja tækifærin? Nýtið aðstæður hér og nú til að efla orðaforða barnanna. Hvaða orð notum við um: – útifatnað – veðurfar – útidótið – umhverfið í garðinum, s.s. sandur, mold, gangstétt, gras – samskipti, …

Leikskólalóðin – útivera Read More »

Heimamenning

Með heimamenningu er átt við persónulega menningu, hvað er mikilvægt fyrir okkur sjálf og hverjir eru styrkleikar okkar. Heimamenningarverkefni Börnin fá karton með sér heim og börn og foreldrar vinna saman að því að búa til veggspjald um hvað börnin vilja sýna að heiman. Þau geta teiknað myndir, notað ljósmyndir, fengið aðstoð við að skrifa …

Heimamenning Read More »

Heimamál – tungumálavikur

Heimamál er það tungumál sem barn talar á heimili sínu. Í tungumálavikum eru heimamál barna og kennara tekin fyrir í leikskólanum. Þá er sjónum beint að einu tungumáli í hverri viku. Hugmyndin á bak við tungumál vikunnar er að hvert tungumál fái rými í skipulagi leikskólans. Áhersla er á að kenna íslensku í leikskólanum en um …

Heimamál – tungumálavikur Read More »

Flæðilestur

Í leikskólanum Hulduheimum í Grafarvogi er flæðilestur með yngstu börnunum – en hvað er flæðilestur? Á heimasíðu Miðju máls og læsis er hugtakið og aðferðafræðin útskýrð.

Scroll to Top
Scroll to Top