Sköpun

Leikur og nám með LEGO

Leiðsagnarvefur um legóþjarka og vélræna högun fyrir kennara og nemendur á yngsta stigi og miðstigi.  

Hvað er söguaðferð?

Söguaðferðin er kennsluaðferð/hugmyndafræði sem hjálpar kennurum og nemendum að setja fram sínar hugmyndir um hvernig vinna má með viðfangsefni námskrár. Sjá grein Bjargar Eiríksdóttur á vef Miðju máls og læsis.   

Nýsköpunarkeppni grunnskólanna

Nýsköpunarkeppni grunnskólanna (NKG) er hugmyndasamkeppni fyrir nemendur í 5. – 7. bekk grunnskóla. Á vef keppninnar má finna upplýsingar um keppina auk fjölbreytts fróðleiks fyrir kennara til að styðja við nýsköpunarvinnu með nemendum í 5.-7. bekk. 

Forritunarkeppni grunnskóla

Tölvubraut Tækniskólans stendur fyrir Forritunarkeppni grunnskólanna. Markmið keppninnar er að kynna forritun fyrir grunnskólanemendum og skapa vettvang þar sem þeir geta komið saman og leyst skemmtileg verkefni. Á vef síðunnar má einnig sjá upplýsingar um námskeið í forritun sem haldin eru fyrir nemendur í grunnskólum og leiðbeiningar og vísun á myndbönd sem kenna forritun.

First Lego League

First Lego League er keppni sem haldin er árlega af Háskóla Íslands fyrir börn 10-16 ára. Markmið keppninnar er að nemendur læri að vinna saman og taki þátt í nýsköpun og framleiðslu á einhvers konar tæki sem leysi þarfir sem eru samfélaginu nauðsynlegar. Tilgangur FIRST og FIRST LEGO League keppninnar er að blása ungu fólki …

First Lego League Read More »

Design thinking

Í aðferðafræði Design Thinking er lögð áhersla á upplifun, samkennd með notendum og nýsköpun. Vefur um Design thinking – aðferðina Grein eftir Samuel Tschepe um hvernig þessi aðferðarfræði nýtist í kennslu.

Landafræði tónlistarinnar.

Menntamálastofnun er með vef sem kallast Landafræði tónlistarinnar. Markmiðið er að kynna fyrir íslenskum nemendum menningu og tónlist sem er þeim framandi. Áhersla er lögð á að kynna ekki bara tónlistina heldur einnig það menningarlega samhengi sem tónlistin er sprottin úr.  Námsefnið er fyrir nemendur á unglingastigi.    

List- og menningarfræðsla á Íslandi

Í þessu riti eftir Önnu Bamford og gefið var út af menningar- og menntamálaráðuneytinu 2011 er fjallað um skapandi kennsluhætti þvert á námsgreinar og svið.  Í henni segir m.a. að greina þurfi á milli þess sem kalla má menntun í listum (þ.e. kennslu hefðbundinna listgreina – tónlistar, leiklistar, handverks, svo dæmi séu tekin) og menntunar …

List- og menningarfræðsla á Íslandi Read More »

Háskóli Unga Fólksins

Háskóli unga fólksins er fyrir fróðleiksfúsa og fjöruga krakka á aldrinum 12-16 ára. Skólinn stendur yfir í tæpa viku í júní og þá sækja nemendur mörg stutt námskeið og kynnast undrum tilverunnar með vísindamönnum í Háskóla Íslands. Háskóli unga fólksins er líka á Facebook. 

Scroll to Top
Scroll to Top