2022-2023

Öll í sama liði

Vanlíðan barna og unglinga hefur aukist síðustu ár samkvæmt niðurstöðum R&G. Fagfólk og aðrir sem starfa með börnum og unglingum hafa upplifað aukningu í slæmri orðræðu og óæskilega hegðun í barna og unglingahópum. Öll í sama liði er verkefni sem hefur það að markmiði að ýta undir jákvæð samskipti barna og unglinga, stuðla að því …

Öll í sama liði Read More »

Heildræn fræðslunálgun í félagsmiðstöðvastarfi

Markmið verkefnisins er að búa til stöðu fyrir verkefnastjóra fræðslumála sem hefði það hlutverk að halda utan um alla fræðslu frístundamiðstöðvarinnar. Í hverjum mánuði yfir skólaárið verður mismunandi fræðsluáhersla sem miðlað verður til barna- og unglinga ásamt starfsfólks og foreldra í hverfunum. Aukin áhersla verður lögð á að efla fræðslu til barna á miðstigi og …

Heildræn fræðslunálgun í félagsmiðstöðvastarfi Read More »

Námssamfélag starfsmanna leikskóla undir leiðsögn stærðfræðileiðtoga

Meginmarkmið verkefnisins er að styrkja námssamfélag leikskólakennara og annarra starfsmanna í leikskólunum með það að leiðarljósi að þeir styrki sig sem fagmenn í að greina hugmyndir ungra barna um stærðfræði og læri að styðja við þær í leikskólanum. Til að það megi takast sem best ætla tveir fulltrúar úr hverjum leikskóla að sækja Menntafléttunámskeið haustið …

Námssamfélag starfsmanna leikskóla undir leiðsögn stærðfræðileiðtoga Read More »

Innleiðing á Gagnvirka samstarfslíkaninu í grunnskólum í Breiðholti

Markmið verkefnisins er að bæta þjónustu við nemendur og veita þeim stuðning á grundvelli fyrirliggjandi gagna og þarfa. Áhersla er á að efla lausnaleit starfsmanna skóla, auka trú þeirra á eigin getu til að styðja við nemendur og að starfsfólk styðji hvert annað í að skapa nemendum námsumhverfi út frá stöðu þeirra og þörfum. Þá …

Innleiðing á Gagnvirka samstarfslíkaninu í grunnskólum í Breiðholti Read More »

Innra mat í leikskóla í Austri – samtal og ígrundun

Markmið þessa eins árs verkefnis er að mynda lærdómssamfélag leikskólastjórnenda leikskóla sem tilheyra Austurmiðstöð með það fyrir augum að fræða þá og styrkja í að innleiða reglulegt, kerfisbundið innra mat á leikskólastarfi með þátttöku starfsmanna, barna og foreldra. Tilgangurinn er að skapa vettvang fyrir samtal um helstu þætti innra mats. Stjórnendur leikskólanna hafa unnið að …

Innra mat í leikskóla í Austri – samtal og ígrundun Read More »

Réttindi barna á Íslandi

Leikskólarnir Ævintýraborg Eggertsgötu, Gullborg, Laugasól, Vinagerði, Ævintýraborg Nauthólsvegi í samstarfi við UNICEF og Háskóla Íslands vinna saman að verkefninu. Markmið þess er að innleiða ákvæði Barnasáttmálans á markvissan hátt í starfshætti fimm leikskóla í samstarfi við UNICEF og Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Tilgangurinn er að valdefla börnin, hlusta á hugmyndir þeirra og sjónarmið og stuðla að …

Réttindi barna á Íslandi Read More »

Leikur, nám og gleði

Leikskólarnir Grandaborg, Gullborg og Ægisborg í samstarfi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands fengu styrk vegna verkefnisins Leikur, nám og gleði. Markmið verkefnisins eru tvö. Í fyrsta lagi að undirstrika mikilvægi leiksins sem meginnámsleiðar barna með áherslu á hlutverk og stuðning kennara og annars starfsfólk, námsumhverfi sem styður við leik og að börnin hafi tækifæri til að …

Leikur, nám og gleði Read More »

Saman komumst við lengra

Grunnskólaverkefni í sameinuðu hverfi Austurmiðstöðvar með það að markmið að vinna að eflingu og samræmingu innra mats og umbótastarfs í öllum fimmtán grunnskólum hverfisins. Innra mat skóla er lykilatriði í því að bæta skólastarf. Með innra mati er skólum gert kleift að byggja ákvarðanir um starfið með meðvituðu, formlegu mati þar sem skólasamfélagið skoðar hvernig …

Saman komumst við lengra Read More »

Flæði og samþætting – Þátttaka barna í leikskólastarfi

Markmið verkefnisins eru í anda áhersluþáttanna sjálfseflingar og félagsfærni þar sem leikskólastarf byggir á jafnrétti og virkri þátttöku barna með því að skapa þeim tækifæri til að upplifa lýðræðisleg vinnubrögð og samskipti í daglegu starfi. Unnið verður að þessum markmiðum munum með því að styrkja starfsfólk leikskólanna með þátttöku í upplýsandi fræðslu og umræðu um …

Flæði og samþætting – Þátttaka barna í leikskólastarfi Read More »

Öll sem eitt

Öll sem eitt! er þróunarverkefni sem miðar að því að bæta líðan hinsegin barna og unglinga og bregðast við þeim auknu þörfum fyrir þjónustu við hinsegin börn og unglinga í skólum og félagsmiðstöðvum. Unnið verður að því að auka virkni og þátttöku hinsegin barna og unglinga í faglegu frístundastarfi með því að bjóða upp á …

Öll sem eitt Read More »

Scroll to Top
Scroll to Top