- 
										
									 Fræðsla og námskeið Fræðsla og námskeið
- 
										
									 Lærdómssamfélög Lærdómssamfélög
Menntastefna Reykjavíkurborgar hvetur okkur til að þróa skóla- og frístundastarf í skapandi lærdómssamfélag sem mætir þörfum 21. aldarinnar. Til þess að svo megi verða er mikilvægt að skóla- og frístundasvið hafi frumkvæði að því að skapa vettvang sem stuðlar að þróun þess. Með þátttöku í lærdómssamfélagi fær starfsfólk í skóla- og frístundastarfi tækifæri til að tengjast, miðla þekkingu og reynslu ásamt því að byggja upp traust og samvinnu.
- Lærdómssamfélag um mál og læsi leikskólabarna. Umsjón Miðja máls og læsis
- Lærdómssamfélag um kennslu fjöltyngdra barna. Umsjón Miðja máls og læsis
- lærdómssamfélag sérkennslustjóra í leikskólum. Umsjón Miðja máls og læsis
- Lærdómssamfélag um mál og læsi í grunnskólum. Umsjón Miðja máls og læsis
- Lærdómssamfélagi um lýðræði, sköpun og margbreytileika í leikskólastarfi.
- Lærdómssamfélag leikskólastjóra.
- UT – tengiliðir grunnskóla. Umsjón Mixtúra
- Tengiliðir fjölmenningar í leikskólum. Umsjón leikskólaskrifstofa
- 
										
									 Ráðgjöf og stuðningur Ráðgjöf og stuðningur
Starfsfólk skrifstofu Skóla- og frístundasviðs veitir fjölbreytta ráðgjöf og stuðning m.a. með miðlun upplýsinga á sérstökum vefsvæðum sem stutt geta við innleiðingu menntastefnunnar og stuðla að þróun og nýsköpun.
- 
										
									 Samstarf við Menntavísindasvið Háskóla Íslands Samstarf við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
Skóla- og frístundasvið og Menntavísindasvið Háskóla Íslands hafa gert með sér samning sem felur í sér að skóla- og frístundasvið greiðir fyrir skipulag og utanumhald sértækra námskeiða og ráðgjöf og leiðsögn frá MVS til starfsstaða og MVS hýsir viðburði og kynnir starfsemi SFS á sviðinu. Má þar nefna viðburði þar sem menntastefnan og áhugaverðar rannsóknarhugmyndir fyrir meistaranema eru kynntar. Einnig viðburði þar sem nýsköpun og þróun í skóla- og frístundastarfi eru kynnt. Starfsstaðir geta óskað eftir að fá fræðslu og ráðgjöf frá kennurum á menntavísindasviði með því að hafa samband við Hildi Örnu Hakansson starfsþróunarstjóra hjá NýMennt.
- 
										
									 Höfuð í Bleyti - Erindi frá uppskeruhátíð 2025 Höfuð í Bleyti - Erindi frá uppskeruhátíð 2025
| Heiti erindis | Nánari upplýsingar | 
|---|---|
| Farsæld til framtíðar | Karen Ósk Ólafsdóttir, forstöðukona í félagsmiðstöðinni Bakkanum og Hörður Brynjar Halldórsson, frístundaráðgjafi í félagsmiðstöðinni Hundrað og ellefu | 
| VAXANDI Félags- og tilfinningahæfni | Guðrún Kaldal, framkvæmdastjóri Tjarnarinnar | 
| Podcast-væðing frístundaheimila Tjarnarinnar | Hildur Hlíf Hilmarsdóttir, Forstöðukona frístundaheimilisins Eldflaugarinnar | 
| Brú milli landa: Samtal um frístundastarf og fjölskyldur með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn | Kriselle Suson Jónsdóttir, ensku- og filippseyskumælandi brúarsmiður hjá Miðju máls og læsis | 
| Valdefling ungmenna úr minnihlutahópum í Breiðholti | Saeed Shamshirian & Muhammed Emin Kizilkaya, brúarsmiðir hjá Miðju máls og læsis | 
| Félagsmiðstöðvar hermir foreldranna | Valgeir Þór Jakobsson, aðstoðarforstöðumaður í félagsmiðstöðinni Hólmasel | 
| HRINGEKJAN | Kristín Lilja Valgarðsdóttir, aðstoðarforstöðukona í félagsmiðstöðinni Vígyn, Ragnar Harðarson, verkefnastjóri frístunda og félagsauðs í Austurmiðstöð og Stefán Örn Kárason, forstöðumaður í félagsmiðstöðinni Vígyn | 
| MYNDRÆNT SKIPULAG OG ÍGRUNDUN | Aþena Marey Birkisdóttir, forstöðukona í félagsmiðstöðinni Heklu, María Agnesardóttir og Dagmar Diljá Margeirsdóttir aðstoðarforstöðukonur í félagsmiðstöðinni Heklu | 
| Brú milli landa Farsæl samskipti við foreldra með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn | Oksana Shabatura, Úkraínskumælandi brúarsmiður hjá miðju máls og læsis | 
| „Ef þú þekkir engan verður allt erfiðara“ Samþættingarferli ungs flóttafólks á Íslandi | Adisa Mešetović, meistaranemi í uppeldisog menntunarfræði og aðstoðarforstöðukona í félagsmiðstöðinni Sigyn | 
| LEIKSVÆÐI ÁN LEIKTÆKJA | Linda Björk Hávarðardóttir, aðstoðarforstöðukona í frístundaheimilinu Dalheimum | 
| Strákar spjalla saman | Hjörleifur Steinn Þórisson, verkefnastjóri frístundaskrifstofu SFS og Ragnar Harðarson, verkefnastjóri frístunda og félagsauðs í Austurmiðstöð | 
| „Tíminn er vinur þinn í þessu“ Ávinningur sértæks hópastarfs í félagsmiðstöðvum. | Ása Kristín Einarsdóttir, meistaranemi í tómstunda- og félagsmálafræði og verkefnastjóri á frístundaskrifstofu SFS | 
| Hjálparar í Dalheimum | Lilja Marta Jökulsdóttir, forstöðukona í frístundaheimilinu Dalheimum | 
| Klúbbastarfshjálpari - Handbók fyrir starfsfólk | Viktor Orri Þorsteinsson, forstöðumaður í frístundaheimilinu Vinaheimar | 
- 
										
									 Höfuð í Bleyti - Erindi frá uppskeruhátíð 2023 Höfuð í Bleyti - Erindi frá uppskeruhátíð 2023
| Heiti erindis | Nánari upplýsingar | 
|---|---|
| Verkfærakista Frístundalæsis | Tinna Björk Helgadóttir og Fatou N´dure Baboudóttir hjá Frístundalæsi | 
| Funfy.is – rafrænn leikjabanki | Sædís Sif Harðardóttir, forstöðumaður í frístundaheimilinu Vogaseli | 
| Gefðu 10 – ekki bíða, byrjaðu strax | Fríða Bjarney Jónsdóttir, deildarstýra Nýsköpunarmiðju menntamála hjá SFS | 
| Allt mögulegt: Úti- og ævintýraleikur Kringlumýrar | Samuel Levesque, frístundaleiðbeinandi í sérstarfi, Kringlumýri | 
| Bland í poka frá Menntavísindasviði HÍ | Oddný Sturludóttir, aðjunkt við námsbraut í tómstunda- og félagsmálafræði | 
| Fréttapiltar | Hjörleifur Steinn Þórisson, forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar Fellsins | 
| Að leiða frístundastarf – hvað þarf góður stjórnandi að gera? | Unnur Tómasdóttir, forstöðukona Eldflaugarinnar | 
| Litli hundurinn er svo sætur – notkun stuttmynda til að skapa umræður á frístundaheimilum | Ulrike Schubert, forstöðukona frístundaheimilisins Halastjörnunnar | 
| Samstarf í Breiðholti og spennandi verkefni | Kári Sigurðsson, aðstoðarforstöðumaður í félagsmiðstöðinni Hólmaseli | 
| Tómstundabrú | Adisa Mesetovic, frístundaleiðbeinandi og Ásta Björg Björgvinsdóttir, forstöðumaður í félagsmiðstöðinni Laugó | 
| Þruman (Orkuboltar) | Elva Hrund Þórisdóttir, forstöðumaður í frístundaheimilinu Regnbogalandi | 
| Tökum samtalið! Klám er ekki kynfræðsla | Eva Halldóra Guðmundsdóttir, verkefnastjóri í frístundamiðstöðinni Tjörninni | 
| Látum draumana rætast - Kynning á Menntastefnu og vef | Fríða Bjarney Jónsdóttir, deildarstýra Nýsköpunarmiðju menntamála hjá SFS. | 
| Listasmiðja á hjólum | Tanja Ósk Bjarnadóttir og Berglind Ósk Guðmundsdóttir frá frístundaheimilum Miðbergs | 
| Litaskógur | Tanja Ósk Bjarnadóttir, frístundaleiðbeinandi og Tryggvi Dór Gíslason, forstöðumaður hjá frístundamiðstöðinni Miðbergi | 
- 
										
									 Höfuð í Bleyti - Erindi frá uppskeruhátíð 2022 Höfuð í Bleyti - Erindi frá uppskeruhátíð 2022
| Heiti erindis | Nánari upplýsingar | 
|---|---|
| Frístundir í Breiðholti | Þráinn Hafsteinsson og Jóhannes Guðlaugsson, Suðurmiðstöð | 
| Sendiherrar í Breiðholti | Jóhannes Guðlaugsson, Suðurmiðstöð | 
| Réttu orðin? - Klám er ekki kynfræðsla | Andrea Marel, deildarstjóri unglingastarfs í Tjörninni. | 
| Vinaklúbbur í Laugarseli | Þóranna Bjartey, frístundaleiðbeinandi í frístundaheimilinu Laugarseli. | 
| Bland í poka frá Menntavísindasviði HÍ | Oddný Sturludóttir, aðjunkt við námsbraut í tómstunda- og félagsmálafræði | 
 
								 
								 
								 
								 
								 
								 
								
 
		 
		 
		 
								

 
		 
		 
		 
		 
		 
		 
		 
		 
		 
		 
		 
		
 
								 
								 
								