Ítarefni

Kynfræðsla

Á vef Menntamálastofnunar má finna námsefnið Kynlíf – kynfræðsla fyrir ungt fólk – kennsluleiðbeiningar. Í námsefn­inu er lögð á­hersla á fé­lagslega og til­finn­inga­lega þætti en jafn­framt fjall­að um líf­fræði­leg­ar hlið­ar kynþroskans. Not­ast er við að­ferð­ir „skemmti­mennt­ar“ (eduta­in­ment) þar sem menn­ing og miðl­ar mark­hóps­ins eru not­að­ir til að koma efn­inu til skila. Náms­efn­ið hef­ur feng­ið nafn­ið …

Kynfræðsla Read More »

Sjúk ást

Sjúk ást er verkefni á vegum Stígamóta um ofbeldi í samböndum ungmenna. Verkefninu er ætlað að vera forvörn gegn ofbeldi með því að fræða ungt fólk um mörk og samþykki. Markmiðið er að ungmenni þekki muninn á heilbrigðum, óheilbrigðum og ofbeldisfullum samböndum. Á vefnum eru upplýsingar um kynlíf, klám, birtingarmyndir ofbeldis, hvað einkennir heilbrigð sambönd …

Sjúk ást Read More »

Heimamenning

Með heimamenningu er átt við persónulega menningu, hvað er mikilvægt fyrir okkur sjálf og hverjir eru styrkleikar okkar. Heimamenningarverkefni Börnin fá karton með sér heim og börn og foreldrar vinna saman að því að búa til veggspjald um hvað börnin vilja sýna að heiman. Þau geta teiknað myndir, notað ljósmyndir, fengið aðstoð við að skrifa …

Heimamenning Read More »

Virðing og umhyggja – ákall 21. aldar

Áhugaverð bók eftir Sigrúnu Aðalbjarnardóttur um mikilvægi virðingar, umhyggju, vináttu og kærleiks í samskiptum fólks. Í bókinni fjallar Sigrún Aðalbjarnardóttir m.a. um mikilvægi þess að rækta mikilvæg gildi í samskiptum fólks sem almenn samstaða ríkir um: virðingu og umhyggju, vináttu og kærleika, réttlæti og umburðarlyndi. Megináhersla er lögð á hversu brýnt sé að efla samskiptahæfni …

Virðing og umhyggja – ákall 21. aldar Read More »

Lýðræði og mannréttindi

Á vef Menntamálastofnunar er umfjöllun um lýðræði og mannréttindi sem einn af grunnþáttur menntunar á öllum skólastigum. Til að auðvelda stjórnendurm, kennurum og öðru starfsfólki skóla að átta sig á inntaki grunnþáttanna og flétta þá inn í skólastarf var gefið út rit um hvern þátt, þ.m.t. um lýðræð og mannréttindi. Leitast er við að varpa …

Lýðræði og mannréttindi Read More »

Lýðræðislegar bekkjarumræður og viðhorf til réttinda innflytjenda

Fræðigrein eftir Sigrúnu Aðalbjarnardóttur og Evu Harðardóttur í Netlu um sýn nemenda á lýðræðislegar bekkjarumræður og viðhorf til innflytjenda. Í greininni er gerð grein fyrir rannsókn þeirra Sigrúnar og Evu en þær könnuðu viðhorf nemenda 11-18 ára til mannréttinda og möguleika innflytjenda með hliðsjón af því hvaða tækifæri þeir telja sig hafa til þátttöku í …

Lýðræðislegar bekkjarumræður og viðhorf til réttinda innflytjenda Read More »

Þátttökulíkan Shier um raunverulega þátttöku barna

Fræðigrein eftir Shier sem birtist í tímaritinu Children&Society 2001. Yfirskrift greinarinnar er Pathways to Participation: Openings,Opportunities and Obligations. Þar fjallar Shier um hvernig best er að stuðla að raunverulegri þátttöku barna í málum er þau varðar. Í greininni gagnrýnir hann þátttökulíkan Roger Hart, sem svo margir kannast við, og setur fram sitt eigið.

Skýrsla eflingu sjálfsmyndar og félagsfærni barna

Starfshópinn skipuðu fulltrúar frá leikskólasviði og mentasviði Reykjavíkurborgar árið 2008. Samhliða skýrslunni voru unnir gátlistar um sjálfsmynd og félagsfærni barna 1-16 ára sem eru ætlaðir til notkunar í daglegu starfi. Skýrslan og gátlistarnir eru vistuð á vef Reykjavíkurborgar.

Um mannkostamenntun

Kristján Kristjánsson heimspekingur fjallar í þessu útvarpsviðtali um hvað felst í mannkostamentun.

Scroll to Top
Scroll to Top